Klóakið fer í tank og því er í lagi að nota klósettið í höfn en það þarf að losa tankinn reglulega. Tankinn má losa þegar skútan er utan við eyjar en alls ekki inni í höfn. Það er fótstig í skápnum við hliðina á klósettinu og er pumpað með því úr tanknum.